Greatest Expectations

Thursday, September 14, 2006

Santa Monica

Fattaði allt í einu að ég er ekkert búin að segja frá nýja heimilinu mínu. Ég bý í Santa Monica sem er bær í miðri Los Angeles. Santa Monica er strandbær þannig að það er alltaf smá vindur, og alls ekki jafn heitt og downtown L.A. Ég bý á 13th street ... sem má auðvitað ekki heita það ... þannig að það heitir Euclid Street og er á milli 12th og 14th. Hverfið er mjög fínt, breiðar gangstéttar og mikil lýsing ... ekkert mál að labba út í supermarkað upp á næsta horni á kvöldin.

The landlord er kona svona um fertugt, frekar lítið heima ... þ.e. kemur heim klukkan 9 á kvöldin og er farin að sofa klukkan 10 (veiiiii alveg eins og ég :-) híhí). og er farin þegar ég vakna á morgnanna. Ég hef ekki ennþá gert mikið af því að elda, en það kemur kannski ... eða ekki.

Mig langar svo að lokum aðeins að fá að kvarta yfir veðrinu, það er semsagt búið að vera skýjað núna í 4 daga og rétt slefar í 20° á daginn ... sem er sko bara ekkert heitt þegar það er engin sól.

1 Comments:

At 2:52 PM, Anonymous Anonymous said...

myndir .. myndir .. myndir ????? :D

ps. vorkenni þér ekki með 20.stigin þín þó svo það sé engin sól! Haust hér og smá chillí svo 20 stig hljómar dásó ;)

luv. R

 

Post a Comment

<< Home