Greatest Expectations

Tuesday, September 12, 2006

Búin að eignast nýjan vin!

Haldiði ekki bara að ég sé búin að eignast þennan líka fína vin ... UPS gaurinn ... hann var 2x í götunni minni (á svona UPS-bíl eins og í King of Queens hehe) í síðustu viku þegar ég kom heim og ég spurði alltaf hvort það væri eitthvað til mín (gæti auðvitað hafa verið nýbúin að banka upp á og engin heima), þannig að hann er farinn að þekkja mig. Hann var ekkert smá glaður í dag þegar hann bankaði hérna á hurðina og var með skjáinn minn í fanginu ... "Guoni Guoni finally finally I have your package". Hinn pakkinn sem er reyndar pakkinn sem ég var að spyrja um allan tímann hefur ekki skilað sér ennþá (your check is in the mail thing í gangi hérna :-S) þannig að ég er ennþá símalaus, þ.e. ekki komin með amerískt númer.

Ég talaði við UPS gaurinn í smá stund, aumingja maðurinn löngu farinn að heilsa mér með nafni út á götu án þess að ég hafi nokkurntímann fengið neinn pakka, og núna hlakkar honum rosa til að koma með alla hina pakkana sem hann á eftir að koma með af því að það er allt svo ódýrt hérna miðað við ísland. Núna þarf ég bara að kynnast Fed-Ex fólkinu líka og þá er ég í fínum málum.

p.s. ....... Og nýji skjárinn minn auðvitað rokkar.

1 Comments:

At 5:24 AM, Anonymous Anonymous said...

hahahahhahha

gott að heyra þú sért búin að eignast "vin" :) Þó það sé bara gæjinn sem kemur með póstinn til þín :D

hljómar samt allt voða sætt og skemmtilegt hjá þér í LA :)

 

Post a Comment

<< Home