Greatest Expectations

Thursday, October 12, 2006

Partying with the celebs

Fór á klúbb á Sunset í gær, var bara nokkuð gaman ... frekar skrítinn staður samt ... Privilege. Fór með frönsku strákunum (þjóðverjanum var ekki boðið :)) og stelpu frá Koreu. Vorum komin frekar snemma og svona slatti af fólki, samt fundum við laust borð. Á borðinu var vínseðill sem var á verðbilinu 300 -2750$, frakkarnir trúðu þessu ekki og voru vissir um að þetta væri talið í centum ... híhíhí. Á næsta borði var afmælisbarn kvöldsins Kaden (who the hell is that?) sem við hreinlega krössuðum í partýið hjá. Þegar líða tók á kvöldið vorum við rekin af borðinu okkur "because they were just about to start bottle service", síðan var þetta þannig að til að fá borð þá varðstu að versla flösku af vínseðlinum ... og já það voru öll 40 borðin full! Þarna var komin samann slatti af svona semi-celebs ... andlit sem maður hefur séð in the movies en veit ekki hvað heitir :) og auðvitað fullt af öðru fólki, gæti alveg trúað að staðurinn taki upp undir 1000 manns. Vorum nú bara frekar dönnuð og kvöddum áður en staðurinn lokaði og ég var komin heim um ca 2 leitið eftir rúmlega hálftíma keyrslu (miðbær-mosó eða miðbær-hafnarfjörður hljómar ekki svo langt núna). Frekar langt síðan ég hef djammað á miðvikudegi og já ... það var rosa erfitt að vakna í morgun

2 Comments:

At 4:57 AM, Anonymous Anonymous said...

ohhhh dásó .. endalaust dásó hjá þér!!! :)

*knúz* .. við skvísurnar erum farnar í sveitina.
>&<

 
At 8:36 AM, Anonymous Anonymous said...

Ég er buin að bíða eftir svona færslu síðan þú fluttir út.. vel gert systir... djamm á miðvikudegi.... halló þú býrð á stað þar sem fáir þekkja þig... farðu nú að gera einhvern skandal... hehe.. love you

 

Post a Comment

<< Home