Greatest Expectations

Sunday, September 24, 2006

Helgin

mmm, búin að hafa það bara hrein yndislegt ... fór á laugardaginn labbandi niðrá göngugötu (tók myndir) sem er 3rd street, ég er á 13th street. LA er frekar fáranleg að því leiti að það eru engin "moll" hérna, en í staðin að þá eru búðir út um allt á götunum, bara svona eins og laugarvegurinn ... allaveg ... ætlaði auðvitað bara að labba niðrá göngugötu og sitja þar og sötra kaffi (eða rauðvín ;/) en villtist inn í einhverjar búðir á leiðinni og var auðvitað með fullt af þungum pokum á heimleiðinni. Fattaði það í leiðinni að ég hef einhverntímann í lífinu búið mér til mjög skemmtilega shopping reglu og hún virkar þannig að ef það kostar undir 30$ þá telst það ekki með :D Sko, þetta er þannig sko, ég fer til útlanda og ætla m.a. að kaupa mér jakka en ef ég sé svo óvart á meðan ég er að leita að þessum jakka sé einhverja flotta jakka á undir 30$ (happens alot you know) þá bara kaupi ég þá og held samt áfram að leita, semsagt telst ekki með. Allavega auðvitað lenti ég á útsölu hjá Foot locker og keypti mér enn eina puma skónna á 29.99 bara ekki hægt að kaupa ekki, skil bara ekki alveg af hverju ég tók með mér 6 pör af skóm að heiman??? (crazy crazy) en ég á eftir að kaupa mér fleiri skó .. alveg pottþétt. Í dag fór ég svo til Venice sem er hérna aðeins sunnar, eiginlega á milli mín og vinnunnar, það er auðvitað hvít strönd hérna upp eftir allri strandlengjunni en hún heitir mismunandi eftir því hvar maður er. Venice beach er mjög löng (8 mílur ca) en ég fór semsagt á Venice beach í Venice bæjarhlutanum, fílaði Malibu beach um síðustu helgi betur, aðeins of mikið rok fyrir minn smekk í dag og örugglega alla daga því að það er eiginlega alltaf rok í vinnunni sem er ekki langt frá.
Eldaði svo þistilhjörtu-pasta handa mér og Victoríu í kvöld með rauðvíni og tilheyrandi ... bara hreint út sagt fín helgi.

3 Comments:

At 1:48 AM, Anonymous Anonymous said...

Öfund Öfund Öfund.. eg held að það sé ekki hægt að fara inní búð á Íslandi og keypt eitthvað sem manni langar í undir jafnvirði $30.
Ég treysti á að þú verðir hagsýn og kaupir mikið þarna úti....

Love, sys

 
At 4:17 AM, Anonymous Anonymous said...

OMG!! hljómar sem dásamleg helgi! :)

Líst vel á þessa shopping-reglu hjá þér :D Ég sé fyrir mér í dýrðarljóma hvað ég gæti verslað á góðum degi þarna með þér ;) Að ógleymdu ljúfa lífinu að stoppa á milli og sötra rauðvín .. jummí!

Gaman að sjá hvað þú ert að njóta þín sæta ... luv >&<

 
At 3:43 PM, Anonymous Anonymous said...

Ahh...þetta ert eitthvað svo mikið þú... þú í öðru veldi, frábært...

 

Post a Comment

<< Home