Greatest Expectations

Tuesday, December 12, 2006

Síðasta vikan :(

Ég er soldið depressed yfir að vera að fara héðan, ekki það að ég sé depressed yfir að koma heim, heldur bara depressed yfir að vera að fara héðan (if that makes any sence ??)
Ég er mjög frantically núna að reyna að gera sem mest á þessum síðustu dögum, held meira að segja að heilinn á mér sé komin í samstarf með að láta þessa síðustu daga vera sem lengsta því að ég er hætt að geta sofið. Bara allt á fullu í kollinum á mér og mér finnst ég bara rétt að ná að vera á milli svefns of vöku, er reyndar að hugsa um að vera bara ekkert að standa í þessu og fara ekki að sofa og sjá hvað gerist þá ... nei nei léleg hugmynd, frekar bara fara rosa rosa seint að sofa og sjá hvort að ég þá dett ekki útaf.
Ég er líka farin að telja 'síðasta' þetta og hitt, í dag var til dæmis síðasti þriðjudagshádegismaturinn minn, ekki það að þriðjudagshádegismatar hafi verið eitthvað spés nema bara núna af því að þetta var sá síðasti. Ég var í verslunarleiðangrum um helgina og er orðin hrædd um að vera bara "all shopped out" veit ekki hvað er að gerast, fór í moll og kom út með 2 LITLA poka, fór niðrá göngugötu og keypti síðustu jólagjafirnar, en ekkert á mig, sem hefur nú sko ekki verið vandamál hingað til í USA :-S getur það verið að ég sé bara "all shopped out" að ég sé bara hreinlega búin að kaupa allt sem mig vantar og allt sem mig langar í og það miklu meira en það að ég bara get ekki verslað meir eða er ég bara generally depressed og þessvegna finn ég ekkert sem mig langar í ????.
Ég er núna með risastóra tösku út í bíl sem ég ætla að vikta á eftir á viktinni upp á 5.hæð til að sjá hvað ég þarf að rífa úr til að hún sé ekki nema 23kg, úffff eiginlega búin að pakka öllu til að sjá hvernig þetta fittar og þetta kemst í 3 töskur en spurning hvort að þetta séu meira en 3x 23 kg, hef reyndar grun um að þetta sé eitthvað miklu þyngra og þá er spurning hvort að mar' skelli ekki bara í fjórðu töskuna og skelli sér í einn enn ... vonandi árangursríkari verslunarleiðangur :)

2 Comments:

At 1:04 AM, Anonymous Anonymous said...

úffff .. ég finn fyrir angist þinni dúllan mín! ;)

trúi samt varla að þú sért alveg "all shopped out" .. kúl nýyrði BTW!

Harkaðu þetta af þér stelpa!! Skelltu þér á fjórðu töskuna og taktu mollið, göngugötuna, götusalana og hvað þér dettur í hug og komdu svo heim eins og sannur vel klifjaður íslendingur frá Ameríkunni!!!

Do us proud! :D

 
At 9:29 AM, Blogger Guðný said...

jamm, fann það út í gær að ég yrði hvort sem er að annaðhvort taka 4ðu töskuna eða skilja eftir línuskautana, vera í helmingnum af fötunum mínum, sleppa mac-mini og kaupa ekkert meir, ég er semsagt nú þegar komin yfir þessi 3x23kg :) svo nú verð ég að vera duglega að fylla í 4ðu, kem sko ekki með eina hálfa ... gengur ekki upp.

 

Post a Comment

<< Home