Greatest Expectations

Monday, December 11, 2006

(næstumþví) hádegismatur með Owen Wilson

Jæja ekki seinna vænna að hitta einhverja celebs, bara kannski betra að taka eftir því. Fór á Chipotle í hádeginu með Martin vinnufélaga mínum. Chipotle er mexíkanskur staður hérna í göngufæri við vinnuna, sátum úti að borða og bara ekkert óvenjulegt í nágrenninu, hef sko bara oft farið þangað og þetta var ekkert öðruvísi. Allavega við erum þarna í svona klukkutíma og förum svo á Starbucks, þegar við erum komin á Starbucks segir Martin við mig, "þú misstir af Owen Wilson, hann sat á næsta borði" ... what, ekkert verið að gefa manni heads up á meðan hann var á næsta borði, nei nei, bara segja mér þetta á Starbucks. Þetta býður nú upp á ýmsar vangaveltur um hverjum ég hef misst af svona í næsta nágrenni, þetta er nefnilega soldið spúkí að ég hef bara ekki séð neinar stjörnur á þessum tæpum 4 mánuðum, kannski er ég bara ekkert að horfa í kringum mig !!!

1 Comments:

At 3:52 AM, Anonymous Anonymous said...

Nohhh þú heppin að hafa átt NÆSTUM því lunch með Owen ;)

híhí

Bráðum verðuru að láta þér nægja fræga fólkið á klakanum. Bo & Magni að árita í Hagkaup :D

.... þá myndi ég frekar vilja "næstum" því e-rn í LA! Ég er líka enn svo mikil gelgja í hjartanum .. og skammast mín ekkert fyrir það! :o)

 

Post a Comment

<< Home